Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa sent helstu samningamenn sína til Pakistan til viðræðna við Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans. Erindrekinn Steve Witkoff og ráðgjafinn Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump, hafa farið fyrir samninganefndum Bandaríkjanna sem gert hafa drög að samkomulagi við Íran.CNN hefur væntanlega för þeirra eftir tveimur ónefndum heimildarmönnum kunnugum málinu. Hvorki bandaríski varaforsetinn JD Vance né íranski þingforsetinn Mohammad-Bagher Ghalibaf ætla til Pakistans að þessu sinni, samkvæmt upplýsingum heimildarmannanna. Olíuverð lækkaði á mörkuðum þegar tíðindin bárust.Bandaríkjamenn líta á Ghalibaf sem höfuð sendinefnda Írans og jafnoka Vance, sem þó er sagður tilbúinn að stökkva af stað með skömmum fyrirvara.Milligöngumenn pakistanskra stjórnval
Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta