Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin

Bandaríski stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til að komast að samkomulagi við Bandaríkin. Þetta sagði Hegseth á blaðamannafundi og bætti við að vænlegast og viturlegast væri fyrir klerkastjórnina að semja á þessum tímapunkti.Bandaríkin og Íran áttu í miklu vinfengi fyrir íslömsku byltinguna árið 1979 en síðan hefur andað mjög köldu milli ríkjanna, ekki síst vegna kjarnorkuáætlunar Írana. Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran í lok febrúar sem Hegseth sagði guðsgjöf til veraldarinnar allrar.Hann átaldi einnig Evrópuríki fyrir að halda sig til hlés og sagði þörf þeirra fyrir örugga olíuflutninga um Hormússund meiri en Bandaríkjanna. Bandaríkin verðskulduðu hins vegar trygga samherja sem gripu til raunverulegra aðgerða í stað þess að halda huggulegar ráð
Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta