Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leikskólapláss losna óvænt í Vesturbænum

Ákveðið hefur verið að seinka framkvæmdum við leikskólann Sæborg við Starhaga í Reykjavík og verður því hægt að bjóða í þau pláss sem losna vegna skólagöngu elstu barna leikskólans í haust.Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, upplýsingafulltrúi á skóla- og frístundasviði, segir að um fimmtán pláss losni í ljósi seinkunar á framkvæmdum við leikskólann. Hún segir þær hafa snúið að því að byggja við leikskólann til þess að fjölga plássum. Þá hafi undirbúningi seinkað sem varð til þess að fresta þurfti framkvæmdunum um að minnsta kosti eitt ár.Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að þeir sem hefðu viljað sækja um pláss í aðalinnritun en breyttu vali sínu og fengu boð í annan leikskóla sé boðið að senda tölvupóst á netfangið innritun.leikskolar@reykjavik.is.Beiðni um breytingu á umsókn þarf að berast
Leikskólapláss losna óvænt í Vesturbænum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta