Sinueldur logar við N1 í Fossvogi. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir einn slökkviliðsbíl hafa verið sendan á vettvang en eldurinn sé tiltölulega lítill eins og er.Starfsfólk bensínstöðvarinnar N1 hefur þegar hafist handa við að reyna að slökkva eldinn, meðal annars með vatni í fötum, að sögn fréttamanns RÚV á vettvangi.Aðspurður segir Guðjón eldinn ekki mikið áhyggjuefni að svo stöddu, litlar líkur séu á því að hann berist inn á bílaplanið að dælunum.Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.