Leit að erlendum ferðamanni við Háafoss í Þjórsárdal er ekki hafin að nýju. Leit var frestað á miðvikudagskvöld og hafði hún þá staðið yfir í rúman sólarhring.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er leitarsvæðið hættulegt. Mikill krapi og drulla er á leitarsvæðinu við Háafoss og eru aðstæður krefjandi. Vísbendingar skortir til að halda leit áfram. Staðan verður metin aftur eftir helgi.Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu sem kallaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Bíll sem maðurinn var á fannst í grennd við fossinn.RÚV / Ferðastiklur