Engar nýjar vendingar eru í málum tveggja Íslendinga sem hurfu sporlaust er þeir voru staddir erlendis á síðasta ári. Þetta segir í svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu.Hinn 25 ára gamli Pedro Snær Riveros og hinn 48 ára gamli Ólafur Austmann virðast hafa horfið á sama sólarhring hvor í sínu landinu.Pedro Snær hefur verið týndur á Spáni frá 17. ágúst 2025 en hann bjó í Barcelona með systur sinni og hafði nýlega ráðið sig sem kokk á skemmtiferðaskipi.Ólafur var staddur í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu, og sást síðast á bensínstöð þar í borg þann 18. ágúst. Að sögn systur hans var hann skó-, síma-, og skilríkjalaus þegar hann hvarf. Hann er í dag á gula lista Interpol yfir týnt fólk.Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hefur einnig verið með hvarf 53 ára Íslendings í Ungverja