Indó hefur í dag sent viðskiptavinum sínum tilkynningu um breytingar á verðskrá sem taka gildi 24. júní. Breytingarnar fela meðal annars í sér að í fyrsta sinn verður innleitt 0,7 prósenta gjaldeyrisálag á kortafærslur í erlendum gjaldmiðlum. Þá verður einnig tekið upp 1,0 prósent gjald á hraðbankaúttektir erlendis.