Flokkur fólksins kynnti áherslumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í Tjarnarbíói í dag. Á sunnudaginn verður vöfflukaffi þar sem áherslur verða kynntar fyrir borgarbúum. Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti flokksins, segist stoltur af breiðum hópi frambjóðenda.Meðal þess sem flokkurinn stefnir að eru heimgreiðslur til foreldra á meðan þeir bíða eftir leikskólaplássi fyrir börn sín og að innleiddur verði 100% systkinaafsláttur.„Við höfum það markmið að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og tökum upp í millitíðinni heimgreiðslur til foreldra sem bíða eftir plássi.“ VILJA TAKA TIL Í BÍLASTÆÐAÖPPUM Guðmundur Ingi segist vilja tryggja öflugt velferðarkerfi og að markmið flokksins fyrir kosningar séu skýr: Fólkið fyrst og svo allt hitt.„Þá erum við að