Einar Már Guðmundsson rithöfundur hlaut í gær verðlaun Jóns Sigurðssonar. Verðlaunin voru veitt í Jónshúsi, á sérstakri hátíð Jóns Sigurðssonar sem haldin var á sumardaginn fyrsta.Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar og geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.Í rökstuðningi forsætisnefndar Alþingis segir að Einar Már hafi lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Hann dvaldi í Danmörku við nám og störf og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, meðal annars Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Norrænu bókmenntaverðlaunin og Verðlaun Karenar Blixen.„Einar Már er miki