Friedrich Merz Þýskalandskanslari segir ekkert útlit fyrir að Úkraínumenn fái flýtimeðferð í aðildarviðræðum að Evrópusambandinu en leggur til að þeim verði veittur aðgangur að fundum þess án atkvæðaréttar.Merz lét þessi orð falla eftir fund óformlegum fundi leiðtoga Evrópusambandsins á Kýpur þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti var meðal gesta.Úkraínumenn hafa lengi þrýst á að aðildarviðræðum verði hraðað sem hefur meðal annars tafist vegna andstöðu Ungverjalands undir forsæti Viktors Orbans. Ósigur hans í þingkosningum fyrr í apríl eykur vonir um að Úkraína geti stigið næstu skref í átt til aðildar.Ríki sambandsins hafa ekki verið ginnkeypt fyrir hraðri inngöngu Úkraínu og Friedrich Merz sagði alla vita að slíkt væri í raun útilokað. Zelensky sagði Úkraínu ekki þarfnast einhvers kon