Sólarorka og viðarkynding verða nýtt til að spara orku og gera rekstur Fjarðabyggðarhallarinnar ódýrari. Kerfi til að nýta orkuna eru á meðal fjölda innviðaverkefna sem fengu samtals yfir hálfan milljarð í styrk úr Fiskeldissjóði.Fiskeldisfyrirtæki greiða gjöld í fiskeldissjóð sem úthlutar á hverju ári fé til sveitarfélaga þar sem eldi er stundað. Í ár voru 554 milljónir króna til úthlutunar.Bolungarvík fékk tæpar 88 milljónir til að gera endurbætur á grunnskólanum, byggja upp nýtt íbúðahverfi og endurnýja götur og fráveitu.Ísafjörður fékk tæpar 107 milljónir í nýja slökkvistöð.Súðavík fékk rúmar 39 milljónir til að byggja líkamsræktarstöð við skólann og gera endurbætur á samkomuhúsi.Vesturbyggð fékk tæpar 107 milljónir til að malbika og bæta skólalóð á Bíldudal.Fyrir austan fékk Múlaþing