Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aðstoðuðu skipstjóra sem fékk veiðarfæri í skrúfuna

Áhöfn björgunarskipsins Varðar II frá Patreksfirði var kölluð út á efsta forgangi fyrir hádegi í dag til að aðstoða skipstjóra lítils fiskibáts sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og orðið vélarvana. Bátur hans var þá nálægt landi utarlega í firðinum. Það þótti vissara að hafa hraðar hendur þrátt fyrir rólegheitaveður, að því er segir í tilkynningu Landsbjargar, en bátinn rak hægt.Vörður hélt úr höfn á Patreksfirði klukkan 11:21, um 10 mínútum eftir að áhöfnin var kölluð út. Um tuttugu mínútum síðar var Vörður II kominn að fiskibátnum og dráttartaug var komið á milli.„Skipin eru nú komin heilu og höldnu til Patreksfjarðar og verið að gera Vörð II kláran á ný,“ segir í tilkynningu.Seinna á árinu er væntanlegt nýtt björgunarskip á Patreksfjörð. Það er í smíðum í Finnlandi.
Aðstoðuðu skipstjóra sem fékk veiðarfæri í skrúfuna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta