Donald Trump Bandaríkjaforseti vill reka Spán úr Atlantshafsbandalaginu, endurskoða afstöðu Bandaríkjanna til þess að Falklandseyjar séu breskt yfirráðasvæði og fleira í þeim dúr, samkvæmt heimildum Reuters-fréttaveitunnar.Minnisblað þessa efnis liggur fyrir og hefur Reuters séð það. Ástæða þessa er óánægja Trumps með að NATO-ríkin hafi ekki hlýtt kalli hans og tekið þátt í stríðsrekstri Bandaríkjanna í Íran.Spánn bannaði meðal annars að herstöðvar þar í landi yrðu notaðar og heimilaði ekki yfirflug bandarískra hervéla. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, kveðst áhyggjulaus og áréttar að Spánn sé traustur og tryggur meðlimur NATÓ.Reuters segir minnisblaðið ekki víkja á neinn hátt að fækkun í liðsafla Bandaríkjanna í Evrópu og sérfræðingar segja herstöðvar í álfunni nauðsynlegar Bandarí