Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stefnt á fulla framleiðslu í álverinu á Grundartanga í lok júlí

„Við höfum auðvitað verið á fullu, bæði að gera við spennana sem biluðu og svo að undirbúa kerlínuna fyrir endurgangsetningu,“ segir Gunnar Guðlaugsson forstjóri Norðuráls.„Það hefur gengið mjög vel og mjög betur en við kannski þorðum að vona í upphafi.“Framleiðsla er hafin að nýju í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls á Grundartanga. Línan hefur legið niðri síðan í október vegna óvæntrar bilunar í rafspennum og framleiðsla dróst saman um tvo þriðju hluta.Gunnar á von á að það taki um þrjá mánuði að gangsetja kerlínuna að fullu. Stefnt er á að álverið á Grundartanga verði komið í fulla framleiðslugetu í lok júlí.„Ég held að við séum nokkuð örugg um að þetta gangi en auðvitað veit maður aldrei hvað gerist.“
Stefnt á fulla framleiðslu í álverinu á Grundartanga í lok júlí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta