Jón Atli var rektor Háskóla Íslands frá 2015 til 2025.RÚV / Ragnar VisageJón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, hefur tekið við sem aðalritstjóri bókaútgáfu Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE). Það eru stærstu samtök tæknimenntaðra í heiminum og aðildarfélagar eru yfir 500 þúsund.Frá þessu er greint á vef Háskóla Íslands.Jón Atli hefur setið í ritstjórn IEEE Press frá 2020 en varð ritstjóri um áramót. Bókaútgáfan annast útgáfu fræðibóka um nýjustu strauma og stefnur í rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði og tengdum greinum. IEEE Press gefur út á bilinu 75 til 100 bækur á ári.