Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir þriðju hungraðra í heiminum búa í aðeins tíu löndum

Tveir af hverjum þremur þeirra jarðarbúa sem glímdu við hungur á síðasta ári bjuggu í aðeins tíu löndum, þar af þriðjungur í Súdan, Nígeríu og Lýðveldinu Kongó. Þetta kemur fram í nýrri árlegri skýrslu um matvælakreppu sem byggir á gögnum Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og mannréttindasamtaka.Um það bil 266 milljónir bjuggu við fæðuskort í 47 ríkjum eða landsvæðum, sem er næstum tvöfalt meira en árið 2016. Stríðsátök eru enn sem fyrr meginástæða alvarlegrar vannæringar ásamt veðurfarsöfgum og ástandið virðist aðeins eiga eftir að versna í ár, samkvæmt orðum skýrsluhöfunda.Hungur sverfur einnig að fjölda fólks í Pakistan, Afganistan, Súdan og Jemen svo dæmi séu nefnd. Þótt aðeins horfi til betri vegar, til dæmis í Bangladess og Sýrlandi, hefur ástandið versnað verulega í Mjanmar, Kong
Tveir þriðju hungraðra í heiminum búa í aðeins tíu löndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta