Eyrún Elvarsdóttir var ung þegar hún ákvað að sleppa barneignum. Hún er nýútskrifaður félagsfræðingur og gerði BA-rannsókn um viðhorf til þeirra sem kjósa barnleysi. Samfélagið virðist mæta kynjunum á ólíkan hátt með þá ákvörðun og karlmenn finna síður fyrir þrýstingi.„Ég þurfti að sannfæra fólk um að þetta væri rétt ákvörðun fyrir mig og allir sögðu að ég myndi skipta um skoðun síðar. En ég er miklu spenntari fyrir því að ala upp hunda en börn“.Eyrún segir að ungar konur séu meðvitaðri um að þær hafi val um barneignir og að umræðan sé að opnast.Helgi Birkis Huginsson er á sömu skoðun og hefur einnig kosið að eignast ekki börn. „Ég held að karlmenn hafi meiri sveigjanleika með þessi mál. Ég hef ekki fundið fyrir neinni pressu hingað til“.