Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Landsvirkjun hefur greitt 110 milljarða í arð á fimm árum

Landsvirkjun greiðir 165 milljónir Bandaríkjadala í arðgreiðslu í ríkissjóð í ár. Það samsvarar um 20 milljörðum króna. Stjórn Landsvirkjunar samþykkti þetta á aðalfundi í vikunni. Fyrirtækið hagnaðist um 36 milljarða króna á síðasta ári. Tekjur hækkuðu um 8% milli ára, hún kemur einkum til af tvennu, hækkun álverðs á heimsmarkaði og meti í sölu upprunaábyrgða.Stjórn Landsvirkjunar er óbreytt eftir nýafstaðinn aðalfund. Í henni er Brynja Baldursdóttir formaður. Aðrir stjórnarmenn eru: Berglind Ásgeirsdóttir, Hörður Þórhallsson, Sigurður Magnús Garðarsson, og Þórdís Ingadóttir.Í tilkynningu segir að samanlagt hafi Landsvirkjun greitt um 110 milljarða í arð til ríkisins á síðustu fimm árum, þ.e. fyrir rekstrarárin 2021–2025.Í fyrra greiddi félagið um fimm milljörðum meira í arð eða um 25 mil
Landsvirkjun hefur greitt 110 milljarða í arð á fimm árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta