Norska knattspyrnusambandinu og íþróttafataframleiðandanum Fanhaus ber að kalla inn allar markaðsvörur sem bera mynd af ljóni ætluðum stuðningsmönnum landsliðsins. Það þykir of líkt ljónsmerkinu í skjaldarmerki Noregs og notkun þess því ólögleg.Ríkislögmaður fyrir hönd utanríkisráðuneytisins gefur frest til 30. apríl til að bregðast við. Norska karlalandsliðið tryggði sæti sitt á HM í sumar með nokkrum glæsibrag og hefur ekki komist þangað síðan 1998.Talsmaður ríkislögmanns segir í samtali við VG yfirvöld vilja skapa mikla stemmningu kringum liðið en það þurfi að gerast án lögbrota og bíður fullt liðsinni við það. Fyrir skömmu voru kynntar markaðsvörur á borð við boli, húfur og önnur klæði með mynd af ljóni sem stendur á afturfótunum og horfir til vinstri.