Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Abbas Aragchi segist hafa rætt vopnahlé við yfirvöld í Pakistan

Utanríkisráðherra Írans segist í færslu á Telegram hafa rætt við háttsetta pakistanska embættismenn um þróun mála í Mið-Austurlöndum og vopnahlé.Abbas Araghchi er utanríkisráðherra Írans.EPA / MARTIAL TREZZINIAbbas Aragchi nafngreindi sérstaklega þá Ishaq Dar utanríkisráðherra og Asim Munir, yfirmann pakistanska hersins.Hann upplýsti þó ekki hvort hann ætti við vopnahlé milli Ísraels og Líbanon, milli Írans og Bandaríkjanna eða hvor tveggja. Stjórnvöld í Pakistan segjast reiðubúin að miðla áfram málum milli Bandaríkjanna og Írans og að allt sé til reiðu í höfuðborginni Islamabad komi til viðræðna.
Abbas Aragchi segist hafa rætt vopnahlé við yfirvöld í Pakistan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta