Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Endurræsa kerlínu sem hefur verið stopp frá í október

Framleiðsla hefur hafist að nýju í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls á Grundartanga. Framleiðsla stöðvaðist í október eftir óvænta bilun í rafspennum. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga dróst saman um tvo þriðju hluta.„Vel hefur gengið að endurræsa fyrstu kerin, í kerlínu 2 í vikunni, en stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar,“ segir í tilkynningu frá Norðuráli. Þar segir að eftir bilunina hafi verið ákveðið að fækka ekki í starfsmannahópi fyrirtækisins. „Ljóst er að fyrirtækið væri ekki jafnvel í stakk búið til að hefja framleiðslu og raun ber vitni ef ekki væri fyrir það einvala lið sem hjá Norðuráli starfar.“
Endurræsa kerlínu sem hefur verið stopp frá í október

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta