Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar.RÚV / Kristófer Óli BirkissonEkið var á konu á níræðisaldri á Skógarvegi í Reykjavík í gærkvöld. Á vettvangi var atvikið metið sem alvarlegt að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Konan var flutt á slysadeild til skoðunar. Lögreglan hefur ekki frekari upplýsingar um líðan hennar að svo stöddu. Ásmundur segir ekki vitað hve hratt bílnum var ekið. Það er á meðal þess sem lögreglan rannsakar.