Starfsfólk Matvælastofnunar hefur orðið fyrir óvenjulega miklum hótunum og áreiti að undanförnu. Dæmi eru um að starfsfólk hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum vegna þessa.Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST segir komið hafa til álita hvort starfsfólk þurfi neyðarhnappa. Sumt starfsfólk óttist um börn sín vegna hótana og áreitis. Í viðtali í Morgunútvarpinu segir Hrönn atvikin tengjast afskiptum MAST af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra.Augljós tilgangur þeirrar háttsemi sé að hræða starfsfólk og ógna því í þeirri von að það hafi áhrif á framgang mála en stofnunin láti ekki undan slíkum þrýstingi. Allar hótanir gagnvart starfsfólki séu litnar alvarlegum augum og séu umsvifalaust kærðar til lögreglu.„Þetta er sem betur fer ekki algengt en þet