Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Smávegis væta norðanlands en bjart veður sunnan til

Það er útlit fyrir fremur hæga norðlæga átt í dag. Norðanlands verður skýjað og sums staðar smávegis væta. Þar verður svalt í veðri og hiti á bilinu 3 til 8 stig.Sunnan til á landinu verður bjart veður með hita að 13 stigum. Í kvöld má búast við skúrum á Suðausturlandi.Á morgun spáir suðlægri átt, yfirleitt á bilinu 5-13 m/s, en hvassara í vindstrengjum á stöku stað vestanlands, t.d. á norðanverðu Snæfellsnesi. Skýjað og dálítil væta öðru hverju sunnan og vestan til en bjart með köflum á norðaustanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig að deginum. Dagana þar á eftir er suðlæg átt í kortunum og svo virðist sem það eigi að bæta í rigningu sunnan og vestan til fyrripart næstu viku.
Smávegis væta norðanlands en bjart veður sunnan til

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta