„Þetta var svo fullkomið augnablik, að ganga um Austurstræti í kjólnum sem ég var búinn að vinna svona lengi að,“ segir hinn tvítugi Ástvaldur Mateusz Kristjánsson en hann fagnaði stórafmæli sínu í glæsilegum kjól sem hann saumaði sjálfur á tæpum þremur mánuðum. Blaðamaður ræddi við hann um tískuna, tilveruna og þessa einstöku flík.