Kirkja sem eyðilagðist í jarðskjálfta í Roussochoria á Austur-Krít 27. september 2021. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / NIKOS CHALKIADAKISJarðskjálfti að stærðinni 5,8 varð í morgun fyrir utan strönd grísku eyjunnar Krítar. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða eyðileggingu.Skjálftinn átti upptök sín á um 13 kílómetra dýpi, um 11,5 kílómetra suðaustur af borginni Ierapetra um klukkan korter yfir sex að staðartíma. Fjölmargir jarðskjálftar urðu á þessum slóðum á síðasta ári. Um þrjú hundruð ára gamalt klaustur skemmdist í einum slíkum skjálfta sem var 5,3 að stærð.