Rúmlega helmingur Íslendinga telur efnahagsstöðuna slæma. Viðsnúningur hefur orðið á afstöðu þjóðarinnar á skömmum tíma. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu. Alls telja 55 prósent þjóðarinnar efnahagsstöðuna slæma, en í apríl fyrir ári síðan var hlutfallið 38 prósent. Meðal fólks á fertugs- og fimmtugsaldri telja 60 prósent stöðuna slæma. Eldri aldurshópar í könnuninni, sérstaklega 70 ára og eldri,...