Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rannsókn lestarslyssins gæti tekið marga mánuði

Viðbragðsaðila við störf á vettvangi lestarslysins.EPA / Mads Claus RasmussenLestarslysið á Norður-Sjálandi í Danmörku er eitt alvarlegasta lestarslys sem gerst hefur þar í landi. Þetta segir Bo Haaning, hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, í viðtali við danska ríkisútvarpið DR.Hann segir að rannsókn slyssins verði ítarleg og geti tekið marga mánuði áður en niðurstöður liggja fyrir um orsakir slyssins. Enn sé því of snemmt að segja til um orsakir slyssins.Að minnsta kosti 17 slösuðust þegar tvær lestir úr gagnstæðum áttum skullu saman á sama spori milli Hillerød og Kagerup. Fimm eru enn í lífshættu. Alls voru 37 um borð í lestunum þegar slysið átti sér stað.
Rannsókn lestarslyssins gæti tekið marga mánuði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta