Óeinkennisklæddir lögreglumenn við störf við Mall of Louisiana.AP/FR170690 AP / Matthew HintonEinn lést og fimm eru særðir, þar af einn alvarlega, eftir skotárás í verslunarmiðstöð í Baton Rouge í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum í gær. NBC News greinir frá.Árásin átti sér stað í Mall of Louisiana, þegar tveir hópar hófu að skjóta hvor á annan í mathöll verslanamiðstöðvarinnar um klukkan hálf tvö að staðartíma. Lögreglustjóri Baton Rouge, Thomas Morse Jr., segir að árásin hafi ekki verið tilfallandi, heldur ósætti milli tveggja hópa sem endaði með skelfilegum hætti fyrir saklaus fórnarlömb.Enginn hinna særðu er grunaður um að hafa tekið þátt í árásinni samkvæmt lögreglustjóranum. Fimm voru settir í gæsluvarðhald vegna skotárásarinnar.