Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Meta segir upp 10% starfsfólks síns

Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram, ráðgerir að segja upp um 10% starfsfólks síns, eða um 8.000 manns samkvæmt fréttaveitunni AFP. Uppsagnirnar taka gildi 20. maí.Með uppsögnunum ætlar Meta að reyna að auka framleiðni starfsfólks sem heldur störfum sínum og ná fram hagræðingu. Meta er í harðri samkeppni við aðra tæknirisa líkt og Amazon, Google, Microsoft og Open AI. Fyrirtækin keppast um að fjárfesta og þróa gervigreind til að tryggja að gervigreindartæknin skili fyrirtækjunum hagnaði.Margir sérfræðingar spá því að Meta muni reyna að bæta skilvirkni auglýsinga og reyna að skapa nýja þjónustu líkt og með snjallgleraugum sínum í samstarfi við EssilorLuxottica, sem framleiðir Ray-Ban gleraugu.
Meta segir upp 10% starfsfólks síns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta