Donald Trump Bandaríkjaforseti.AP / Alex BrandonVopnahlé milli Ísrael og Líbanon verður framlengt um þrjár vikur. Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu sem hann birti á samskiptamiðlinum Truth Social í kvöld. Háttsettir fulltrúar Ísraela og Líbana funduðu með Bandaríkjaforseta, J.D. Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra í Washington í dag.Samkvæmt Bandaríkjaforseta gekk fundurinn vel og Bandaríkjastjórn ætlar að vinna með ríkisstjórn Líbanon og aðstoða hana við að vernda sig gegn Hezbollah-samtökunum. Trump sagði að innan tíðar muni Bandaríkin bjóða forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, og forseta Líbanon, Joseph Aoun, til fundar í Bandaríkjunum.