Hópur vísindamanna hefur komist að því að skemmdir í hvíta efni heilans geta einnig hrundið af stað einkennum sem tengjast taugahrörnunarsjúkdómum í heila. Þau eru hins vegar ekki skaðleg heldur mikilvægur hluti af endurmyndun heilavefjar.„Við erum að breyta hvernig við hugsum um taugahrörnunarsjúkdóma,“ segir Ragnhildur Þóra Káradóttir, prófessor í taugalífeðlisfræði við Cambridge-háskóla og Læknadeild HÍ. Hún fór fyrir rannsókninni en niðurstöður hennar birtust í vísindatímaritinu Nature í gær. NIÐURSTÖÐUR GANGA GEGN HEFÐBUNDNUM HUGMYNDUM UM BÓLGUR Í HEILA Ragnhildur Þóra útskýrir að skemmdir í hvíta efni heilans séu einkenni taugahrörnunarsjúkdóma eins og MS og Alzheimer auk aldurstengdrar heilabilunar. Skemmdirnar hafi þó hingað til ekki fengið mikla athygli í vísindalegum rannsóknu