Barnamenningardagar eru nú haldnir í fyrsta skipti á Suðurlandi. Um fjögurra daga hátíð eða daga er að ræða, sem hófst síðdegis í gær með setningu í Árborg og svo fylgdu hin sveitarfélögin á eftir. Í tilefni setningarinnar spilaði t.d. blásarasveit Tónlistarskóla Árnesinga í miðbænum á Selfossi og boðið var upp á dansatriði frá Dansakademíunni og ýmislegt fleira gert.„Það eru öll sveitarfélögin á Suðurlandi meira og minna með og þetta er í fyrsta sinn, sem þetta er gert, að barnamenning fagni svona heild yfir allt Suðurland, þannig að við erum bara ofboðslega ánægð með þetta,” segir Hera Fjölnisdóttir, verkefnisstjóri menningar- og upplýsingadeildar Árborgar.„Við ætlum að bjóða upp á mjög mikið af alls konar list. Það er dans, það er tónlist, það er myndlist og það eru allar listgreinar un