Hunangsflugur eru komnar á stjá og drottningar að vakna úr dvala. Ein frekar stúrin skreið um sólpallinn heima hjá Rúnari Snæ Reynissyni fréttamanni á Egilsstöðum á sumardaginn fyrsta.Hún hresstist við hunangsdropa og saup af áfergju. Þegar hún hafði drukkið nægju sína fór hún að teygja sig og gera æfingar áður en hún tók hún flugið út í sumarið.