Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Starfsmaður tengdur siðanefndarmálinu rekinn og síðan endurráðinn

Haraldur Daði Ragnarsson hefur aftur hafið störf við Háskólann á Bifröst, nú sem kennsluráðgjafi á kennslusviði. Þetta staðfestir Ólína Þorvarðardóttir Kjerúlf, rektor skólans, við fréttastofu. Hann hafi hafið störf um síðustu mánaðamót.„Haraldur Daði er rótgróinn starfsmaður við Háskólann á Bifröst og hefur mikið fram að færa, bæði sem kennari og sem starfsmaður á kennslusviði. Hann hefur mikla reynslu og það er fyrst og fremst það sem ræður hans ráðningu,“ segir hún.Haraldur Daði starfaði við viðskiptadeild skólans frá 2014 og varð síðar fastráðinn. Frá árinu 2021 var hann lektor við skólann. Hann var, samkvæmt heimildum fréttastofu, rekinn frá Háskólanum á Bifröst seint á síðasta ári en hefur nú fengið ótímabundna ráðningu á ný. SIÐANEFNDARMÁL OG DEILUR Miklar deilur hafa skekið Hásk
Starfsmaður tengdur siðanefndarmálinu rekinn og síðan endurráðinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta