Þrenn gullarmbönd sem talin eru vera frá víkingatímanum hafa fundist í Himmerland á Norður-Jótlandi í Danmörku. Danska ríkisútvarpið greinir frá og ræðir við Torben Sarauw, sérfræðing í menningararfi.Hann segir íbúa í Himmerland hafa skilað inn tveimur armböndum í góðu ástandi. Fornleifafræðingar hafi svo farið á sama stað og fundið þann þriðja.„Þetta er alveg galið, við höfum aldrei lent í öðru eins,“ er haft eftir Sarauw. „Í þessu tilfelli eru þetta þrjú heil gullarmbönd og það er mjög sérstakt. Við fáum næstum aldrei gullmunum skilað inn til okkar.“