Dætur manns sem var handtekinn af bandarísku innflytjendalögreglunni ICE í New York í fyrra sjást á ljósmynd ársins hjá samtökunum World Press Photo. Ljósmyndarinn er Carol Guzy sem er þekkt fyrir áhrifamiklar ljósmyndir frá svæðum þar sem er neyð eða átök.Myndin ber yfirskriftina „Aðskilin af ICE“ eða „Separated by ICE“. Á henni sjást ungar dætur Luis, manns frá Ekvador, ríghalda í föður sinn meðan alríkisfulltrúar handtaka hann.World Press Photo segir ljósmyndina fanga raunveruleika margra í Bandaríkjunum sem óttast að vera handtekin, send úr landi eða verða aðskilin frá ástvinum sínum af völdum harðrar innflytjendastefnu.Tvær aðrar myndir komu til greina að mati dómnefndarinnar. Önnur þeirra sýnir konur sem tilheyra frumbyggjasamfélagi Maya Achi í Gvatemala. Þær eru meðal þeirra sem sti