Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn ICC hefur samþykkt að Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, skuli ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni. Dómarar samþykktu einróma að ríkar forsendur væru til að telja að manndráp og tilraunir til manndráps hefðu verið framin í harkalegum aðgerðum í nafni stríðs gegn fíkniefnum í stjórnartíð Dutertes, frá 2016 til 2020.Talið er að allt að 30.000 liggi í valnum eftir aðgerðir síðasta áratugar.Duterte hafnar sök. Hann var handtekinn í Manila, höfuðborg Filippseyja, í fyrra og fluttur til Haag. Ekki liggur fyrir hvenær áætlað er að réttarhöld hefjist né hvort Duterte verði viðstaddur.Hann ákvað að vera ekki í réttarsal við málsmeðferð um sakarefnin í febrúar því hann væri „gamall, þreyttur og veikburða“, líkt og það var orðað í yfirlýsingu. Þá kvaðst han
Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta