Í oddvitaumræðum Kópavogs var tekist á um Kópavogsmódelið sem tekið var upp í bæjarfélaginu á kjörtímabilinu. Það felur í sér að sex tíma vistun er gjaldfrjáls í leikskólum Kópavogsbæjar en vistun umfram það felur í sér meiri kostnað en áður.Oddvitar Viðreisnar og Samfylkingar vilja lækka leikskólagjöldin í bænum. Það vill oddviti Sósíalista, Markús Candi, einnig. Hann segir núverandi kerfi brautryðjandi en að ráðast mætti í breytingar.María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, vill að komið verði til móts við börn sem bíða eftir leikskólaplássi með auknum fjárstuðningi.Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, segir leikskólagjöld í Kópavogi þau hæstu á landinu og vill auka systkinaafslátt. „Það er alveg klárt að það þarf að endurskoða gjaldtökuna,“ segir hann.Ásdís Kristjánsd