Það er mikið um að vera í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi í dag því þar er opið hús og sumrinu fagnað með fjölbreyttum uppákomum. Hægt verður að fá nýhellt íslenskt kaffi í skólanum en kaffibaunir eru ræktaðar á staðnum og Þá er bananahúsið opið, ásamt öðrum gróðurhúsum fyrir gesti og gangandi.Það er starfsmannafélag skólans, sem er með opna húsið en skólinn opnaði klukkan 10:00 í morgun og verður opið til klukkan 17:00. Allir eru velkomnir og ekkert kostar inn. Garðyrkjuskólinn er undir hatti Fjölbrautaskóla Suðurlands og eru um 100 nemendur í skólanum á Reykjum. Guðríður Helgadóttir er staðarhaldari og veit allt um opna húsið.„Það er fastur liður hjá mjög mörgum að mæta hingað til okkar og fagna sumrinu á þennan hátt. Það eru öll húsin okkar opin og fólk hefur gaman af því að fara í