Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, spyr sig hvort útlegging Friðberts Friðbertssonar forstjóra Heklu um að borgin hafi orðið af milljörðum vegna þess tíma sem samningar á Heklureit hafi tekið hafi verið tilraun til gamansemi, en þar vísar hann í ummæli Friðberts í Morgunblaðinu í gær.