BUBBI MORTHENS - VIÐ FÖLLUM Við föllum er nýjasta lag Bubba Morthens og er tekið af væntanlegri plötu Ásbjörns sem kemur út í maí. Lagið segir hann að sé risastórt og kröftugt, þar sem gestainnkoma frá Fjallabræðum gerir mikið. Nýja platan kemur út 8. maí og auk þess styttist í tónleika Bubba í Laugardalshöll 6. júní. KRISTNÝ EIR - EIN LEIÐ AÐ ELSKA Tónlistarkonan Kristný Eir er að feta sín fyrstu skref innan tónlistarbransans en hefur þó samið lög síðan í barnæsku. Hún spilar á gítar og syngur angurværa og ljúfa tóna með áherslu á ljóðræna textasmíð en lagið útsetti Magnús Jóhann Ragnarsson. STAFRÆNN HÁKON - TÚ-KÓKÓ Síðrokksveitin Stafrænn Hákon hefur verið starfrækt síðan á síðustu öld með Ólaf Örn Jósepsson í stafni. Sveitin gefur ansi reglulega út og þeirra nýjasta plata Suð/Kók