Bólgur í heila sem áður voru taldar skaðlegar geta í raun verið hluti af náttúrlegu lækningarferli heilans. Þetta er meginniðurstaða nýrrar rannsóknar sem birtist í gær í virta vísindatímaritinu Nature, undir forystu Ragnhildar Þóru Káradóttur, prófessors í taugalífeðlisfræði við Háskóla Íslands og Cambridge-háskóla.