Akureyrarbær tilkynnti í febrúar að starfsfólk sjúkrahússins í bænum gæti óskað eftir forgangi að skólavist í leikskólum bæjarins. Var þetta gert til að bregðast við bráðum mönnunarvanda SAk og náði til bæði lækna og hjúkrunarfræðinga. Nýverið var ákveðið að forgangurinn næði einnig til starfsfólks HSN.„Forgangurinn felur í sér að barn færist ofar á biðlista og fái boð um leikskólavist þegar pláss losnar. Skilyrði fyrir samþykktri forgangsbeiðni er að foreldri eða forráðamaður leggi fram staðfestingu á skuldbindingu um að starfa hjá viðkomandi stofnun í að minnsta kosti 12 mánuði frá upphafi leikskóladvalar,“ segir á vef Akureyrarbæjar.Að sögn Erlu Björnsdóttur, forstjóra SAk, er mikil ánægja með þetta framtak hjá bænum og hafa þegar tveir starfsmenn nýtt sér forganginn. Þetta verði til þe