Forseti og forsætisráðherra Líbanons sökuðu Ísrael í dag um stríðsglæp eftir að líbönsk blaðakona lést í loftárás í suðurhluta landsins, þar sem ísraelskar hersveitir hafa hernumið nokkur svæði. Björgunarsveitir og vinnuveitandi blaðakonunnar staðfestu í gær andlát Amal Khalil, 42 ára blaðakonu sem starfaði fyrir líbanska dagblaðið Al-Akbar. Almannavarnir sögðu að hún hefði látist í árás á hús í þorpinu al-Tiril....