Tæplega fjörutíu þúsund konur og stúlkur voru drepnar á Gaza frá því að stríðið hófst í október 2023 fram til desember 2025. Það þýðir að minnst fjörutíu og sjö konur og stúlkur voru drepnar á degi hverjum.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá UN Women. Á tímabilinu hafa yfir tuttugu og tvö þúsund konur og sextán þúsund stúlkur verið drepnar og nærri ellefu þúsund særðar þannig að það hefur áhrif á þær alla ævi.Þrátt fyrir að hálft ár sé liðið síðan vopnahlé komst á hafa dráp á stúlkum og konum haldið áfram undanfarna mánuði.Sofia Calltorp, yfirmaður mannúðarstarfa hjá UN Women, segir stríðið hafa breytt fjölskyldumynstrum. „Konur eru nú orðnar höfuð tugþúsunda heimila. Þær hafa misst eiginmenn sína og halda lífinu í fjölskyldunum tekjulausar, án stuðnings eða aðgangs að grunnþjónustu.“