Farice undirbýr nýjan sæstreng milli Íslands og Skotlands sem áætlað er að verði tekinn í notkun árið 2030. Farice rekur þegar sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS. FARICE-1 er sá elsti og er fyrirhugað að nýi strengurinn taki við af honum.Hann hlýtur nafnið AUÐUR og er þar vísað til landnámskonunnar Auðar djúpúðgu Ketilsdóttur sem sigldi frá Skotlandi eins og fjallað er um í Laxdæla sögu, að því er segir í tilkynningu Farice.Gert er ráð fyrir að nýr afhendingarstaður verði þróaður í Glasgow eða Edinborg. Þaðan liggja öflugar tengingar til helstu fjarskiptamiðstöðva Evrópu, þar á meðal London, Dublin, Amsterdam og Norðurlanda.Farice segir að með þessu stækki net fyrirtækisins verulega og umferðartími milli Íslands og helstu fjarskiptamiðstöðva í Evrópu styttist.Sjávarbotnskönnun vegna lagn