Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Halda óhljóðatónlistarhátíð í íbúðarhúsi í miðbænum

Í litlu niðurgröfnu bakhýsi við Ingólfsstræti var óhljóðatónlistarhátíðin RVK Noise Fest haldin hátíðleg helgina 18. og 19. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún fagnar hvers kyns óhljóðatónlist.Þórir Georg, stofnandi hátíðarinnar, hafði lengi haldið svipaða viðburði en hafði alltaf langað að gera meira með þá. Það var svo þegar góður vinur hans Árni Grétar Jóhannesson, einnig þekktur sem Futuregrapher, lést að Þórir ákvað að kýla loksins á hátíðina og láta hana gerast.Þórir segist heillast af óhljóðatónlist eins og hann heillast af allri annarri tónlist. „Ég hef svosem alltaf haft áhuga á agressívari og öfgakenndri og skrítinni tónlist og þetta er svona ákveðinn endapunktur í því kannski,“ segir hann.R6013 var alltaf fyrsta valið fyrir hátíðina, segir Þórir. „Það voru
Halda óhljóðatónlistarhátíð í íbúðarhúsi í miðbænum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta