Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Alltaf jafn sárt að rifja þetta upp

Um árabil þurftu mörg íslensk sveitabörn að fara ung að heiman til að stunda nám í heimavistarskólum. Sum voru haldin mikilli heimþrá og grétu sig í svefn á hverju kvöldi en önnur hugsa með hlýju til þessara ára.Fjallað er um þennan tíma í skólasögu landsins í þáttaröðinni Börnin á vistinni sem Þórgunnur Oddsdóttir hefur umsjón með.  FYRSTU ÁRIN ERFIÐUST Í Þelamerkurskóla voru börn og unglingar í heimavist frá 1963 og fram á níunda áratuginn. Eydís Björk byrjaði í skólanum haustið 1974. > „Fyrstu tvö árin voru bara mjög erfið og maður kannski sagði ekki mikið. Ég var ekki barnið sem kvartaði í foreldrum mínum þegar ég kom heim en maður grét í hljóði og það sem var erfiðast fyrir mig, það voru kvöldin og að fara að sofa,“ segir Eydís. „Auðvitað voru allir með mismunandi upplifun. Við k
Alltaf jafn sárt að rifja þetta upp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta