Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hiti að 13 stigum á sumardaginn fyrsta

Í dag er útlit fyrir vestlæga eða breytilega átt, 3 til 10 metra á sekúndu. Búist er við bjartviðri að mestu á Norður- og Austurlandi en þokubökkum á stöku stað við sjóinn. Yfirleitt skýjað í öðrum landshlutum og sums staðar þokuloft við vesturströndina. Hiti 5 til 13 stig. Norðlægari vindur á morgun af svipuðum styrk. Skýjað á norðurhelmingi landsins, sums staðarsmávegis væta og svalt í veðri eða hiti 3 til 8 stig. Bjartviðri sunnantil á landinu með hita að 13 stigum.Um og eftir helgina virðast spár nokkuð sammála um að áttin verði suðlæg með mildu veðri og vætu sem einkum verður bundin við sunnan- og vestanvert landið.RÚV / Ragnar Visage
Hiti að 13 stigum á sumardaginn fyrsta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta